26.3.2008
High-side crash - Ái...
Missir afturdekkið út undan sér, panik og reisir það of skart í hina áttina, afturhjólið fær aftur gripið, maðurinn þýtur yfir hjólið (high side) sem þýðir venjulega meiri meiðsl. Í Low side falli ertu að slæda undir hjólinu og minni líkur á meiðslum - ef galli og hjálmur halda...
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2008
Ásinn búinn að uppfæra!!!
Ásinn var búinn að hóta því!! Enginn trúði því!! hvað gerði hann?? HANN UPGREIDAÐI KVIKINDIÐ!!!Nýr Kawasaki Z750 í húsi.
Til sölu Kawasaki Er-6N, keyrt 4000km. sést á myndasíðunni.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2008
Ný Honda CBF600
Honda er búinn að uppfæra millistærðar sport-tourer, CBF600, litli bróðir CBF1000 sem Honda umboðið bauð á rúmlega miljón kall í haust. Þessi CBF600 er með hálf-kápu, 600 cc mótor sem framleiðir 77 hö við 10.500 sn. og tog upp á 59 Nm við 8.250 snúninga (sem er minna tog en SV650 og ER6n framleiða). Heil 217 kg, eða um 40 kg þyngra en okkar hjól. Hondan alltaf í stálinu... Sætið með stillanlegri hæð. Laglegasta hjól, örugglega með góða ásetu. Alvöru mælar fyrir snúning og hraða (analog ekki digital) og alvöru bensínmælir. Fleiri myndir á topspeed.com.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008
Ofureinvígi
Hayabusa frá Suzuki hefur verið uppfærð með 2008 árgerðinni og var látin mæta nýja ofurhjólinu frá Kawasaki, ZZR14 (eða ZX14 í USA). Þetta eru kvartmílutæki, hestöflin yfir 190 og togið yfir 150 Nm (crank), dyno-bekkur (kraftur í afturhjól) gefur um 15% minna. Þessum krafti ná hjólin á lægri snúningi en venjulegir racerar en eru þyngri en þeir. Byggð framþung til að prjóna minna. MotorCycle USA setti upp einvígi milli þessara hjóla, sjá hér. Ca 2,8 sek í 100... Hayabusan rétt marði þetta.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2008
Nýir gixerar
Suzuki hefur uppfært 600 og 750 cc GSX-R racer hjólin þannig að þau eru öll orðin svipuð GSX-R 1000 sem kom nýtt í fyrra. Ál-stell og títan ventlar, nýir litir. Hérna eru myndir af 1000 cc. 185 hö og 173 kg. Hvíti liturinn er flottur! Þetta er hjólið sem brjálæðingurinn fór í 300 km hraða á veginum út í Garð, tók video af hraðamælinum og birti á vefsíðu. Hélt svo fram að enginn hefði keyrt hjólið, það stalst út sjálft...
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2008
Scorpion kútar
Scorpion kútar hljóma flott og bæta við hestöflum á miðju kraftsvæðinu. Seastar superbikes í Bretlandi selja svona kúta bæði fyrir ER6n/VerSys og SV650. Verð frá 165 pundum (race útgáfan sem er háværari), sem ætti að gera í kringum 40 kallinn hingað komið. Nema að taka þetta næst með heim þegar einhver á leið út, þá er þetta ekki nema um 20 þús á dollu.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2008
Góðir hjálmar hjá Louis.de
Þessir Airoh hjálmar eru á útsölu hjá www.louis.de, kjálkahjálmar.
Kosta 80 evrur sem er ca 14 þús komið inn í stofu (margfalda verðið í evrum með gengi og 1,8). Nitro er með þessa hjálma á yfir 20 þús.
Mæla svo hausinn yfir ennið með málbandi og láta mig vita ef þið hafið áhuga!
Þristurinn
PS: Guðni Már: Einfaldast er að fara inn á vefverslun www.louis.de og klára málið sjálfur...
Lífstíll | Breytt 25.2.2008 kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.2.2008
Debos mættir á netið!
Jæja debóar, nú er að hlaða inn myndum, linkum og fleira.
Veðurútlit, aukahlutir, það sem ykkur dettur í hug.
Starta og gera klárt! Vorið er hérna einhvers staðar.
Tékkið á myndaalbúminu!
Debo 3
(röðin fer eftir afhendingardegi ...)
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)