9.3.2013
BMW með nýjan tourer - F800 GT
BMW uppfærði sinn 800 cc tourer, úr ST í GT, 5 hp sterkari mótor (90 hp), ABS standard, fullt af aukahlutum t.d. Electronic Stability Control (ESC) og Electronic Suspension Adjustment (ESA), 2 cyl parallell mótor, 86 Nm tog. Verðið út í bláinn, væntanlega...

Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2013
Honda með retro CB1100 fyrir Evrópu

Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2012
Nýr Yammi FJR 2013
Myndir hafa lekið á netið af uppfærðum Yamaha FJR 1300 ferðahjóli. Nýir mælar, nýjar hliðarkápur, aðeins breytt grind, að öðru leyti eins hjól og kom nýtt 2001, með ABS 2003, val á sjálfskiptingu 2006. Hjólið er 142 hestar v. 8000 og 134 Nm tog v. 7000 og hefur löngu sannað sig sem frábær tourer. Yamaha virðist ekki ætla að breyta mikið góðri uppskrift en engir nýir spekkar á mótor hafa lekið út. Hjólið verður sýnt á sýningunni í Köln í næstu viku.
Löggan er með þetta hjól eins og allir vita og hafa stimplað útlitið inn í minnið. Þegar löggan losnaði við Harald Davíðs beljurnar og fór að nota þetta hjól fór hún að ná árangri.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2012
Bimota DB9 með orkupakka frá Ducati
Bimota kynnti nýjan streetfighter í vetur, DB9 Brivido, með mótor frá Ducati, Testastretta 11 sem er að finna í Ducati Diavel og fleiri hjólum frá Ducati. Mótorinn gefur 162 hesta sem er gott í 177 kg hjóli. Hjá Bimota byggja menn utan um driflínu frá öðrum framleiðendum en leggja sjálfir til stell úr áli og króm-molybden léttmálmi. Bremsur frá Brembo, púst frá Arrow, gaffall frá Marzocchi og svo skreytt með koltrefjum. Frágangur í sérflokki. Verðið er ekki fyrir dauðlega.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2011
Ódýrari Streetfighter frá Ducati
Streetfighter frá Ducati, með 1100 cc V mótor, fær félagsskap fljótlega, útgáfu með 848 cc mótorinn frá Evo supersport. Verðmiði undir 10K pund í Bretlandi. Í kringum 130 hestar og 94 Nm.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2011
Frábært Snæfellsnes
Góður túr í kringum Snæfellsnes í síðustu viku, hiti 16-19 stig, Nesið í hátíðarskapi! Tæpir 500 km, menn voru stirðir eftir túrinn en brostu allan hringinn...
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2011
Benelli með afmælisútgáfu
Benelli hefur framleitt mótorhjól í 100 ár og fagnar afmælisárinu með sérstökum útgáfum (Century Racer) af TnT 899 og 1130. Litlu breytt nema áletrun á tanki og Alcantra leðursæti en 1130 er eitt fallegasta hjól ever, með eða án afmælis. 1130 er með 129 hp á 8500 sn. í 3 cyl hliðstæðum 1130 cc mótor. Marzocchi gaffall, Sachs afturdempari, Brembo bremsur og aðrir topp íhlutir.

Lífstíll | Breytt 12.6.2011 kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2011
Honda með nýtt 700 cc með DCT
Honda kom með tvöfalda kúplingu (DCT) í nýja VFR 1200, tækni sem gerir hjólið hálfsjálfskipt og hefur verið til í Audi/VW bílum. Tvöföld kúpling þýðir að ein kúpling sér um oddagíra (1., 3. og 5.) og önnur kúpling um jafna gíra (2., 4. og 6.). Þegar einum gír sleppir er næsti gír tilbúinn og kúplaður. Nú hefur nýtt 700 cc hjól verið spottað á þessari njósnamynd, fyrir utan DCT er hjólið frekar low-tech, hliðstæður tvistur, sprækt án þess að vera ofurhjól. Verður sýnt í Milano í nóvember og í sölu á næsta ári.

Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2011
MV Agusta með nýjan topp racer
MV Agusta frá Ítalíu er með nýjan racer, F4 RR. Línufjarki 998 cc, 201hp við 13.400 sn. með hámarkshraða 297 km/klst. Vera í góðum galla? Títan ventlar, aerospace léttmálmur í bullum, 43 mm Öhlins UpSideDown framdemparar, TTX 36 Öhlins fullstillanlegur afturdempari, Öhlins stýrsdempari, tvö Magneti Marelli kveikjukort (maps), Brembo bremsur, allt topp íhlutir.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2011
Aprilia Tuono V4 R
Aprilia hefur skrælt kápuna af RSV4 racernum og sett á markað naked útgáfu, Tuono V4 R. Mótorinn er V4 1000 cc, 162 hp og 110 Nm. APRC kerfi sem er spólvörn, prjónstýring o.fl. Nokkur kveikiskemu (maps). Bara fallegt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)